miðvikudagur, maí 17, 2006

Letilíf

Kann greinilega ekki að lifa letilífi. Er að fara yfirum. Búin að þrífa herbergið frá gólfi og upp í loft, búin að raða bókum, ganga frá bókum, etc. Settist meira að segja niður í gær og saumaði franskan rennilás á flugnanet, festi fyrir báða gluggana í herberginu. Þetta verður fyrsta sumarið á ævinni (held ég) sem ég mun geta haft gluggana opna. Já, ég er með flugnafóbíu á óþarflega háu stigi. Nú eru einu flugurnar sem komast inn, þær sem eru ímyndaðar. Seinustu vikuna í próflestrinum heyrði ég svotil stöðugt suð, sem enginn annar heyrði, leitaði um allt og fann hvergi upptök þessa óþægilega hljóðs. Hlýtur að vera í mínum eigin heila.

Eins mikið og ég er fylgjandi kosningum og því að fólk nýti sér kosningarétt sinn, því það er í rauninni eini rétturin, eina valdið sem við, sauðsvartur almúrurinn höfum. Þá þoli ég ekki þennan tíma. Þoli ekki kosningaumræður og kosningaloforð. Þoli ekki frambjóðendur, kosningaslagorð, kosningaauglýsingar, kosningasmölun. Þoli ekki frambjóðendur sem láta mynda sig með saklausum börnum sem hafa ekkert í þennan ógeðslega slag að gera. Frambjóðendur sem stilla sér upp út um allt, brosandi, með eiginkonu upp á annan arminn, þrjú smábörn upp á hinn. Get ekki horft á fréttir, varla lesið blöðin. Þoli þetta ekki. Þetta er frekar skrýtin meinloka. Held að ég sé með krónískt ofnæmi fyrir kosningalygum, tilvonandi sviknum loforðum, tilvonandi spilltum fulltrúum almennings og eiginhagsmunapoturum.

Þá er það frá. Mér er létt.
En ég mun svo sannarlega kjósa - og það ekki út í loftið.

2 ummæli:

Skotta sagði...

Ertu snargeðveik, stelpa?

Dalbjört sagði...

Jamm, efaðist einhver um það? Kolklikk. Einver sendi menn með spennitreyju, helst tvær!
Bzzzzz

Er Akureyrin enn á sínum stað, eins og þú skildir við hana í haust?