miðvikudagur, ágúst 02, 2006

Stress

Eitt lítið og ómerkilegt umslag var í 15 daga á leiðinni frá Leeds til Kópavogs. Það var frekar óheppilegt þar sem þetta ágæta umslag innihélt óundirritaðan leigusamning, dagsettan. Í meðfylgjandi bréfi var ég náðarsamlegast látin vita að ég hefði 15 daga frá dagsetningu samningsins til að undirrita hann og senda hann aftur út til þeirra og borga tryggingargjald, annars fengi einhver annað herbergið mitt.

Eftir nokkra tölvupósta, svefnlausa nótt, símtal til Accommodation Office, passamyndatöku og vænan skammt af stressi, þá var mér lofað að þetta myndi nú allt saman reddast. Þ.e.a.s. ef ég myndi senda samninginn sem allra, allra fyrst til þeirra.

Undirritaður samningur og fjórar passamyndir af sérlega stressaðri manneskju, allt saman í pósti. Vona að leiðin milli Hafnarfjarðar og Leeds sé styttri og fljótfarnari en leiðin milli Leeds og Kópavogs.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já pósturinn er ekkert skemmtilegur þessa dagana, ég held ég verði í eilífðarfílu út í þá! Hvað ef mikilvægt bréf frá Keele hefði verið á leiðinni til mín, hvað þá?
Arg.

Nafnlaus sagði...

"Arg" þér til samlætis.