nna sem ég er búin að þramma með langar leiðir - og lappirnar verða uppgengnar, að minnsta kosti upp að hnjám. Ég er búin að labba meira þessa seinustu fjóra daga heldur en samtals allt seinasta ár. Svo er 20 til 25 mínútna labb í skólann. Og sirka jafn langt niður í miðbæ.Lyklar og ég eiga greinilega alls ekki samleið. Lykillinn að bráðabirgða-herberginu mínu á Clarendon Road passaði ekki svo ég varð að fá nýjan. Lykillinn að herberginu mínu hér í Sentinel Towers passar alveg, hann passar líka að íbúðinni, en svo er rafeindatækni-lykill til að opna útidyrahurðina, hann virkaði alls ekki. Ég varð að fá nýjan. En sagan er ekki öll. Fann blaðsnepil á gólfinu við dyrnar, það á að skipta um lása á hverri einustu hurð í öllu húsinu, þannig að ég á von á að lásasmiðir banki upp á, skipti um lás og ég þarf nýja lykla.
Búin að kaupa pínulitla pönnu, nokkra diska og þess háttar. Veit hvar þvottahúsið er, þarf að safna kjarki til að athuga hvernig þvotturinn muni ganga. Dagurinn í dag fór annars mest megnis í búðarráp og þrifnað. Enda er baðherbergið orðið nokkurn veginn boðlegt og ég get orðið hugsað mér að setjast niður við eldhúsborðið til að borða. Skildi að vísu ekki gólfmoppuna. Hvernig getur gólfmoppa verið svona flókin? Nú eða sturta? Þvílíkur lúxus að fara í sturtu. En það þarf bara fyrst að fatta að toga í spotta við hliðina á vaskinum til að það sé hæg að ýta á takka á tæki í sturtunni til að fá náðarsamlegast að skola af sér ferðalagið. Kann ekki enn á ofninn í herberginu, hann er ofar mínum skilningi. Eins og margt annað. Meira um það síðar.

4 ummæli:
Velkomin nafna til Bretland!
Ég er sammála þér með síðar hendur og búðarráp og það sem meira er það styttast á manni lappirnar líka... þannig að eftir nokkrar ferðir er maður farin að líkjast loðnum frændum okkar í limaburðum, gáfnafari og álíka brosmildur líka.
En það jákvæða við þetta allt er að breytingarnar ganga til baka :)
Hafðu það gott og verðum í bandi.
Flott að heyra að þetta gengur vel, vonandi verður svo áfram. Svo komum við út eftir bara smá...
Sú-sem-er-að-verða-pínu-stressuð-en-hlakkar-samt-líka-til.
Gaman ad heyra i ykkur. Gott ad vita ad thessar breytingar a vaxtarlagi munu ganga til baka. :)
Og Kria, stressid a eftir ad aukast, allt a eftir ad virdast oyfirstiganlegt, en svo skanar thetta allt saman og solin fer ad skina a ny.
Bestu kvedjur fra Leeds.
PS. Afsaka skrytna stafsetningu i thessu commenti, er i enskri tolvu sem skilur ekki islenska stafi.
Hæ hæ
Gaman að sjá hvað þú ert dugleg að blogga, það styttir manni stundirnar í vinnunni;) Sé að þú ert með svipaða heppni og ég þegar kemur að ferðalögum. Síðast þegar ég þurfti að ferðast með lestum hrundi brú sem lestin mín átti að fara yfir og á leiðinni til baka rákust tvær lestur á svo biðin var óendanleg!! Vona að hreinlætisaðstæðan verði fín hér eftir og að félagar þínir í íbúðinni séu ekki algjörir sóðar:)
Bless í bili
Skrifa ummæli