Ég hef undanfarið kvartað nokkuð oft yfir svefnleysi mínu og erfiðleikum við að vakna.
Í morgun glaðvaknaði ég hins vegar klukkan átta (og átti ekki að mæta í skólann fyrr en klukkan tólf). Rölti í rólegheitunum fram á gang og svo út í ferska loftið. Stóð þar í korter. Á náttfötunum. Með úfið hár og stírur í augunum. Ásamt um hundrað manns í álíka múnderingum. Það er nefnilega svolítið erfitt að sofa í þessum dómadags hávaða sem brunabjöllunar valda. Auk þess sem það er frekar taugatrekkjandi.
Sú ákvörðun virðist semsagt hafa verið tekin að halda brunaæfingu okkur til góðs, klukkan átta að morgni. Sem var mjög vinsæl ákvörðun. Svo eftir korter birtist karl á planinu og tilkynnti hróðugur að það hefði tekið okkur tólf mínútur að koma okkur út, þar sem það ætti bara að taka þrjár mínútur þá gætum við átt von á annarri svona æfingu fljótlega.
Eins og einn íbúðarfélagi minn sagði: "At fucking eight o'clock in the fucking morning! I'd rather burn!" Svo fór hann aftur að sofa.
En ég er glaðvakandi og er meira að segja alvarlega að íhuga að fara bara að læra áður en ég mæti í skólann.
fimmtudagur, nóvember 16, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
Mín brunaæfing var klukkan 5 um morgun, svo ég vorkenni þér lítið. En þetta er mjög fyndið!
Vorkenni þér samt smá.
Skrifa ummæli