miðvikudagur, desember 20, 2006

Rigning

Það er búið að rigna meira þessa síðustu daga hér heima heldur en samtals þessa þrjá mánuði í Leeds. Það myndi ég kalla nokkrar fréttir, England hefur víst löngum verið talið algert rigningarbæli. En, það er allt í lagi, það er gaman að vera heima. Þó það rigni og blási og fólk sé að mestu leyti í öðrum heimi og best að minnast ekki einu sinni á umferðina og hætturnar þar.

Rangá finnst mér þykkjuþung,
þröng mér sýndi dauðans göng,
svangan vildi svelgja lung,
söng í hverri jakaspöng.

Hef ekki hugmynd um hvaðan þetta vísubrot er, enn síður eftir hvern það er. Það hefur hins vegar setið pikkfast í höfðinu á mér síðan ég var að læra að skrifa forðum daga. Fannst hún viðeigandi svona í tilefni flóða og vatnavaxta undanfarinna daga. Þar að auki vantaði mig eitthvað uppfyllingarefni í blogg dagsins, heldur lítið að frétta. Dagarnir líða í smá vinnu og afslöppun (of mikilli afslöppun meira að segja, afskaplega erfitt að setjast niður og byrja að púsla ritgerðinni saman).

Engin ummæli: