þriðjudagur, júlí 17, 2007

Klukk

Skilst að ég hafi orðið fyrir klukki. Að nú þurfi ég að birta átta staðreyndir um sjálfa mig. Hef vanalega ekki tekið þátt í svona klukk-dæmum, en ætla að prófa að láta slag standa.

1. Fékk mitt fyrsta tvíhjól þegar ég var fimm ára gömul. Fékk lánuð sérlega léleg hjálpardekk hjá frænda mínum. Eftir fáeina metra endaði ég í hrúgu utan vegar. Hjólið fékk að launum að dúsa í bílskúrnum næstu árin. Lærði því ekki að hjóla fyrr en ég var orðin átta ára. Og þá án hjálpar hjálpardekkja.

2. Ég á sjö bókasafnskort (ekki öll í gildi samt).

3. Rata ekki alltaf heim til mín. Það er að segja, ég hitti ekki alltaf á rétt hús. Húsin beggja vegna virðast höfða mikið til mín.

4. Ætlaði að hætta námi eftir 10. bekk, fór í menntaskóla. Ætlaði að hætta námi eftir stúdentspróf, fór í háskóla. Ætlaði að hætta námi eftir BA-próf, er búin með eitt BA, langt komin með annað. Ætla svo að bæta að minnsta kosti sjötta háskólaárinu við. Mér er ekki við bjargandi.

5. Ætlaði heldur ekki að taka bílpróf. Var nú samt komin með skírteinið í hendurnar nokkrum dögum eftir afmælisdaginn. Verra var að það var bakkað á sex-daga gamlan bílinn fyrir utan sýslumannsskrifstofuna þegar ég var að ná í blessað skírteinið.

6. Þekkti einu sinni flesta fána heimsins. Einu sinni. Veit ekki alveg hvers vegna.

7. Labba á ljósastaura með reglulegu milliblili.

8. Fann Esjuna fyrst árið 2001. Þegar ég flutti í Kópavoginn og uppgötvaði að fjallið blasti við úr stofugluggunum. En átján árin þar á undan hafði ég ekki hugmynd um hvar á landinu þessi hóll væri. Esjan, Askja, Hekla, Katla, var allt sama brauðið fyrir mér. Hef hins vegar ekki enn klifið Esjuna, gengið á Esjuna eða hvernig svo sem á að taka til orða. Og það stendur ekki heldur til.

Engin ummæli: