Fór aftur í berjamó um helgina. Í þetta sinn var ekki rigning. Sem var til bóta. Þannig að nú er allt yfirfullt af bláberjum. Í bili.
Bankinn hefur enn sem komið er ekki sent mér neitt lögfræðibréf um að ég sé stórskuldug sökum ensks gúmmítékka upp á tvöhundruð pund. Sem er gott.
Ég var fengin til að skrifa nafn mitt á lista þar sem ég boðaði þátttöku mína í óvissuferð starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar. Með fyrirvara. Veit ekki hversu vinsælt það yrði að hafa eina edrú manneskju á svæðinu vopnaða myndavél og óalkóhólvættum heila. Kemur í ljós.
mánudagur, ágúst 27, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

8 ummæli:
Þú verður amk pottþétt vinsæl ef þú setur myndirnar svo á netið svo ég geti séð!
Þú segir nokkuð. Kannski pósta líka videoum á youtube. ;-)
Linda mín, mér líst rosalega vel á að þú mætir í óvissuferð og takir myndir af liðinu og sýnir svo okkur hinum;)Eins og Matti segir þá verðurðu pottþétt vinsæl!!!
Ég veit ekki hversu vinsæl þú yrðir þá Linda mín, ekki það að ég ætli að gera eitthverjar gloríur fremur en vanalega;)
Kv. Harpa
Iss, það eru engar gloríur gerðar í svona óvissuferðum, er það nokkuð? ;)
Hva, Harpa, efastu um tilvonandi vinsældir mínar? Eftir því sem lækkar í flöskum og dósum þeim mun meira ligeglad verðið þið. ;-)
Ég hef aldrei farið í óvissuferð áður (nema til Leeds), þannig að ég er að fara að komast að því hvort einhverjar gloríur muni eiga sér stað. Held að þið hljótið að vera mjög pen og fín. :-)
Frábærar myndir á YouTube :)
-sumir hafa aldeilis skvett úr klaufunum...
He, heee, he!
Annars allt gott héðan, 1. í skóla í dag og allir sprækir. Bestu kveðjur frá okkur til ykkar á ... Hrauninu.
Já, þetta verður spennandi, ekki spurning.
Það tók mig nokkrar mínútur að fatta Hraunið. ;-)
Heilinn alltaf í frekar miklum hægagangi hjá mér þegar best lætur.
Bestu kveðjur til UK frá okkur á Hrauninu (ekki því litla samt, best að taka það fram).
Skrifa ummæli