Remembrance Day eða Poppy Day er í dag í tilefni loka fyrri heimstyrjaldarinnar.
Dagur heilags Martins er víst líka í dag. Honum var fagnað í gær, laugardag. Nóg að gera.
Norræna bókasafnavikan hefst á morgun og stendur til 18. nóvember. Nóg að gera.
Kynstrin öll, jóladagskrá bókasafnsins hefst 17. nóvember og stendur til 29. nóvember. Nóg að gera.
Er loksins búin að fá helminginn af skiptináminu úti í Leeds metinn hér heima. Það er að segja seinni helminginn, vormisserið. HÍ á enn eftir að meta fyrri helminginn. Þetta tekur engan tíma hjá þeim, eru skotfljótir. Bara þrír mánuðir liðnir síðan ég sendi þeim opinberar einkunnir frá Háskólanum í Leeds. Bara rúmur mánuður síðan ég fór að suða í þeim hér heima að fara nú að kíkja á pappírana og gera eitthvað, eins og til dæmis ýta á nokkra takka á lyklaborðinu og meta þetta ár.
Svei mér þá, við erum greinilega farin að nálgast Bretana í skriffinskunni. Nálgast.
Ekkert villst frá seinustu færslu. Rambaði meira að segja á Laugarveginn um daginn - með ljósrit úr símaskránni mér til halds og trausts. Sem betur fer.
Góðar stundir.
sunnudagur, nóvember 11, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
Það er ekki margt ömurlegra og leiðinlegra til en þungt skriffinnskubákn. Og tala þá ekki um tilgangsleysi þess. Niður með skriffinnskuna!
Heyr! Heyr!
Skrifa ummæli