þriðjudagur, janúar 22, 2008

Bílamál

Kominn tími á næsta bílaævintýri mitt.

Á föstudaginn var hófst dagurinn fyrir allar aldir, eða um sjöleytið, á boxæfingu. Brunað beint á ská í skólann þar sem franskir kennsluhættir voru krufðir til mergjar. Á frönsku. Rétt náði að koma við heima að fá mér eitthvað í svanginn. Svo lá leiðin beint í vinnuna. Held að ég hafi svosem náð að forðast stórmistök frá eitt til sjö.

Að sjálfsögðu voru veðurguðirnir búnir að láta öllum illum látum á meðan ég var í vinnunni. Gerðust svo óforskammaðir að bæta örlítið í snjóinn. Þannig að bíllinn sem ég labbaði að eftir vinnu var þakinn snjóhulu. En, gegnum svefnleysisdoðann þá mundi ég samt eftir því að á öllu þessu flakki í og úr boxi, í og úr skóla og svo í vinnu, þá hafði bíllinn ekkert verið allt of sáttur við að beygja.

Þannig að eftir vinnu labbaði ég að bílnum á bílastæðinu sem ég legg alltaf í - og hóf að sparka klakahraukum af - aftan við dekkin og undir bílnum. Eða öllu heldur, ég reyndi. Ábyggilega verið skemmtileg sjón að sjá. Hvernig ég endaði á að hálfskríða í snjónum til að reyna að ná góðu sparkfæri - með hælnum. Bak við dekkin. Svo dustaði ég megnið af snjónum af bílnum. Ánægð með sjálfa mig ákvað ég að nú væri nóg komið. Best að koma sér inn í bílinn, setja hann í gang, miðstöðina á fullt og taka fram rúðusköfuna.

Ég ýtti á opni-takkann á bíllyklinum.
Ekkert gerðist.
Ég ýtti aftur á sama takka. Og bíllinn lét ekki einu sinni svo lítið að blikka mig.
Vískur.
Ég ýtti á báða takkana, sinn í hvoru lagi, og svo báða í einu.
Ekkert gerðist.

Nú voru góð ráð rándýr. Farsíminn ný orðinn hungurmorða. (Sá gæti nú alldeilis marg kært mig til Farsímaverndarnefndar, fyrir mikla og ítrekaða vanrækslu). Var við það að fara að rölta af stað upp á Holt. Mér hefði aldrei dottið í hug að labba að næsta húsi og biðja um að fá að hringja - var á þessu stigi alls ófær um mikla hugsun.

Þá fór ég allt í einu að horfa betur á bílinn. Og velta vöngum í erfiðri tilraun til að reyna að koma einhverjum heilasellum til starfa. Hafði ég lagt bílnum þarna? Og var bíllinn minn virkilega dökkblár? Þriggja dyra? Með kassaða spegla? Og svona "stór"?

Bíllinn sem ég var búin að eyða tíu mínútum í að klaka- og snjóhreinsa leit bara alls ekki svona út:









Ég leit í kringum mig. Hinum meginn á planinu stóð hins vegar nákvæmlega svona bíll. Reyndar með fullt af klaka og hélu og snjó. En hann hins vegar sá sóma sinn í því að blikka mig þegar ég ýtti á opni-takkann á lyklinum. Upphófst nú klaka-, snjó- og héluhreinsun númer tvö. Og sumir voru komnir í frekar vont skap. Bíllinn að sjálfsögðu. Ég skipti aldrei skapi.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hvar er harpa?