Enn er verið að hringla með bókmenntafræðinámskeiðið sem ég er í. Í bjartsýniskasti í byrjun misseris mannaði ég mig upp í að spyrja skorarformann hvort einhver möguleiki væri á því að fá það námskeið metið þar sem ég væri í rauninni búin að læra mikið af þessu efni sem þar er á boðstólum. Skorarformaður tók vel í það. Síðan leið og beið. Mætti alltaf í námskeiðið, lærði alltaf heima. Og beið. Fékk svo það svar að einn bókmenntafræðikennari hefði sagt þvert nei, ég fengi þetta ekki metið. En, skorarformaður ætlaði að spyrja annan kennara. Vikulega er ég búin að spyrja um framvindu. Aldrei komið svar. Ég mæti enn í tímana, en ég er svotil hætt að læra fyrir þá, það er frekar erfitt þar sem ég hef ekki hugmynd um hvort ég eigi eftir að þurfa að taka próf í þessu eða ekki. En, í dag skal lært af miklum móð, trassaskapur liðinna vikna unninn upp.
Fór í bakarí um helgina. Ekkert fréttnæmt við það þannig lagað. Þetta var stórt bakarí. Með allavega fjórum starfsmönnum að afgreiða. Ég gerðist svo óforskömmuð að biðja um djöflatertu. Við mér blasti tómlegt augnaráð. Svo var haldið þing handan afgreiðsluborðsins. Hvað var þessi vindblásna og ósofna manneskja að biðja um? Djöflaterta? Hvað er nú það? Eftir miklar umræður, fundarstörf og nefndaskipanir, þá fékk viðskiptavinurinn sem talaði þetta skrítna mál spurningu til baka: er það svona...héddna...súkklaðikaka?
Tók lítið flipp. Flug pantað til Akureyrar næstu helgi, íbúð útveguð, sem og miðar á Fló á skinni. Fer á fimmtudag, kem af
tur á sunnudag. Ef veður leyfir.Tók örlítið stærra flipp. Keypti flugmiða til Parísar. Keypti svo flugmiða frá París til Martinique. Fer 15. maí, kem aftur 27. maí. Rétt náði að smygla mér með í árlegt ferðalag frönskudeildarinnar. Verðum 15 í allt. Martinique er ein af gömlum nýlendum Frakka í Karabíska hafinu, ekkert svo langt frá Haití og Dóminíkanska lýðveldinu. Allavega ekki á korti.
Ætli ég sé loksins komin með unglingaveikina? Ætli hún lýsi sér í svona órðáðsíu flippum?
Annars er allt við það sama.
- Mikill tími fer í að forðast lærdóm. Það stendur þó til bóta í augnablikinu. Er alvarlega að íhuga að verða mér úti um tvískipt lögheimili. Deila tíma mínum milli Bókhlöðunnar og lesherbergis Bókasafnsins.
- Box þrjá morgna í viku. Alltaf jafn erfitt. Ótrúlegt en satt, hélt að maður myndi ná að byggja upp eitthvað þrek og þol eftir nokkra mánaða þjálfun.
- Vinna aðeins.
- Sofa aðeins minna. Hver þarf svosem að sofa?
Nú er best að fara að ráðast á skruddurnar.
Bráðum.

3 ummæli:
By the way ... þú gleymdir að bóka ferð til Bretlands.
En þú gerir það - bráðum, er það ekki? Svona um sama leiti og þú ræðst á bókastaflann.
Bestu kveðjur,
Linda Björk og félagar.
Hey, ég reyndi! Sumir ætla bara að vera að vera á einhverjum þvælingi í Frakklandi á þeim tíma. ;-)
Finn tíma - einhvern tímann. Og kannski peninga líka. hehe
Hæ hæ sæta
Langt síðan ég las póstinn þinn síðast:) Hló mig máttlausa. Verð að vera duglegri að kíkja á bloggin hjá fólki svo maður viti nú aðeins hvað er um að vera.
Kveðja Harpa Rut
Skrifa ummæli