Sumir eru heppnari en aðrir.
Í gær beið mín bréf þegar ég kom heim úr vinnunni. Frá Bílastæðasjóði. Þetta var tilkynning um hækkun stöðvunarbrotagjalda. Af því að ég hefði ekki borgað sekt innan hálfs mánaðar. Ég hefði fengið stöðumælasekt þann 14. maí klukkan 16:21 á Geirsgötubílastæði.
Ég hoppaði nú ekki beinlínis hæð mína af kæti yfir þessum bréfsnepli.
Nr. 1
Var ekki búin að fá neitt annað bréf. Engin stöðumælasekt verið sett undir rúðuþurrkurnar á bíl hjá mér frá því 2005, í desember það ár.
Nr. 2
Ég veit ekki hvar þetta blessaða Geirsgötubílastæði er. Hef ekki grænan. Mér var samt sagt að þetta væri sennilega Kolaportsbílastæðið. Ef svo er, þá kannast ég allavega við að hafa lagt bílnum þar. Meira að segja þennan umrædda 14. maí.
Nr. 3
Þó ég hafi lagt bílnum hjá Kolaportinu þann 14. maí, þá var það um hádegið. Klukkan 16:21 var ég í Hafnarfirði - og bíllinn líka!
Nr. 4
Í bréfinu var bent á netfang þar sem maður gæti komið mótmælum á framfæri. Ég samdi formlegt bréf. Sendi það. Kíkti síðar um kvöldið á póstinn. Returned to sender. Þá er Bílastæðasjóður hættur frá og með júní 2008 að taka við mótmælum á þessu netfangi. Þá þurfti ég að fara á síðuna hjá þeim og leita að einhverri leið þar.
Ég fékk semsagt tilkynningu um hækkun stöðvunarbrotagjalda sem mér höfðu aldrei borist, fyrir að leggja ólöglega meðan ég og bíllinn vorum bæði í öðru bæjarfélagi og eina leiðin til mótmæla sem bent var á í þessu bréfi var orðin úrelt þegar bréfið barst.
Velkomin heim til Íslands.
Heili enn á Martinique. Jarðskjálftar. Stöðvunarbrotagjald úr öðrum heimi. BA-ritgerð.
þriðjudagur, júní 03, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
Velkomin heim nafna, hafðu heilann bara áfram á Martinique.
Borgaðu sektina strax, þeim "blörraða" vantar pening svo hann geti haldið áfram að láta verkin tala!
Bestu kveðjur úr ísbjarnarfría umhverfinu hér í Middlands.
Linda Björk
Takk fyrir það. En, nei, ég borga ekki baun! Blörraði karlinn getur bara borgað sína uppdiktuðu sekt sjálfur. ;-)
En, ég ætla nú ekki að fara að gera ísbjörn úr moskítóflugu, þetta reddast allt saman. Vonandi.
Kveðja frá öllum,
Linda Rós
Skrifa ummæli