fimmtudagur, ágúst 28, 2008

Sumarblogg

Sumri hallar. Engin ritgerð. Sálarlífið að komast í réttar skorður eftir ritgerðarruglið. Lífið farið að ganga sinn vana gang.

Eftir Martinique-ferðina (og eftir að hafa gefist upp á títtnefndri ritgerð) þá tók ég lífnu með mikilli ró sem samanstóð af vinnu, sjónvarpsglápi og svefni. Kíkti samt heilum tvisvar sinnum aðeins út úr bænum. Skrapp til dæmis í stuttan laugardagsbíltúr austur fyrir fjall í góðra vina hópi sem voru að þvælast um með fjórar breskar stelpur, þar af þrjár fimmtán ára gelgjur með meiru. Það var fróðlegt að upplifa Ísland hálfpartinn sem erlendur ferðamaður, nær því er varla hægt að komast. Þetta var fyrir mig skemmtileg blanda af því að skoða staði sem ég hafði kíkt á nokkrum sinnum áður á líflsleiðinni og uppgötva ný fyrirbrigði.

Skoðuðum nýja hveri við Hveragerði, Leirgerði meðal annarra. Aldrei séð þá áður. Gengið í kringum Seljalandsfoss. Nokkrum sinnum, en ekki áður gert mér almennilega grein fyrir því hve merkilegt það er að geta gengið undir fossinn. Bresku stelpurnar tóku líka góðan klukkutíma í að skoða undrið. Paradísarhellir var næstur á dagskrá. Þangað hafði ég aldrei komið áður. Ég lagði samt ekki í að klifra upp í hellinn sjálfan. Ég verð nefnilega ágætlega lofthrædd ef ég neyðist einhverra hluta vegna til að standa á stól. Einu sinni var ég meira að segja send upp á fataskáp til að mála vegginn þar fyrir ofan. Upp á skápinn komst ég. Og þar fraus ég rækilega. Gat hvorki hreyft legg né lið. Foreldrar mínir urðu að gera svo vel að sækja mig og einhvern veginn koma mér niður. Þess vegna ákvað ég að fylgjast bara með því með báða fætur á föstu landi þegar nær allur hópurinn gerði sér lítið fyrir og klifraði upp í Paradísarhelli. Lét mér nægja að gefa góðar leiðbeiningar.

Seljavallalaug fylgdi þar á eftir. Aldrei komið þangað áður. Enda hverjum dytti í hug að leita að sundlaug þarna. Enginn vegur. Varla göngustígur að heitið geti. Labbað yfir grjót og klungur, klifrað yfir skriður. Og allt í einu birtist eitt stykki sundlaug upp úr þurru. Ég fylgdist nú líka bara með sundgörpunum. Get haldið mér álíka vel á floti og grjót. Auk þess sem mér fannst laugin ekki vera allt of hrein. Get verið svolítil tepra þegar þannig ber við.

Rétt kíkt á Skógarfoss og þar skildust leiðir. Höfðum lagt af stað um klukkan níu um morguninn. Við Skógarfoss var klukkan orðin hálf sex. Þá yfirgáfum við tvær hópinn sem hélt áfram ferð með Bretana. Ég endaði daginn á því að gerast hálfboðin boðflenna í góðum kvöldmat í sumarbústað við Þingvallavatn. Svo var brenna niðri við vatnið eftir mat. Eftir brennu og skemmtilegheit, var Nesjavallaleið keyrð til baka í bæinn. Í svarta þoku. Heimkoma var um miðnætti.

Þetta var frábær stuttur laugardagsbíltúr um verslunarmannahelgi.

Í þessu ferðalagi komumst við að einu. Aygo er enginn aumingi. Alls ekki. Honum eru flestir vegir færir. Ekkert mál að komast að bílastæðinu "við" Seljavallalaug. Ekkert mál að komast að sumarbústaðnum við Þingvelli. Svolítið erfiðara að komast þaðan reynar. Sem betur fer var ég ekki við stýri á því augnabliki. Annars væri Aygoinn enn fastur í innkeyrslunni. Ég sem var í vafa um það hvort sýnishornið myndi komast upp Kambana. Slepptum reyndar þeirri leið en fórum Nesjavallaleiðina til baka og þar eru nú engar smá brekkur.

Í annað sinn sem ég skrapp úr bænum þá fór ég ásamt fleirum í langþráðan berjamó. Reyndar var aflinn ekki neitt sérlega mikill, en nægur til að ná í nokkrar bláberjaskálar.

Þetta eru ljósu punktar sumarsins. Restin hefur liðið í vinnu og svefni, fjárfestinu í svotil ónýttu líkamsræktarkorti og leti.

Jæja, hér er hlýðinn og góður bloggari á ferð. Biðjið og fyrir yður mun bloggað verða. Og nú liggur við að ég fari að verða of sein í vinnuna þannig að prófarkalestur færslunnar verður að bíða betri tíma. Bið afsökunar á stafsetningar-, innsláttar- og staðreyndavillum.

Góðar stundir.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nú líst mér á þig:)

Kveðja
Harpa R

Nafnlaus sagði...

;-)
Maður safnar svona í sarpinn og skellir inn stöku löngum, en reyndar mis-góðum, bloggum.

Nafnlaus sagði...

Takk, takk, já og vel á minnst ....
við viljum vikulegt blogg!
Knús, slef og allt.
Linda Björk

Nafnlaus sagði...

Ég lofa að reyna að standa mig betur í þessu.
Bestu kveðjur til Bretalands.
Linda Rós

Nafnlaus sagði...

Paradísarhellir er snilld, leiðilegt að þú hafir ekki þorað upp! En ég verð einhverntíma að fara að skoða þessa sundlaug þegar ég kem heim.. Eitt að því skemmtilegasta sem ég geri er einmitt að skoða Ísland eins og túristi - fór einusinni í hvalaskoðun og það þótti mér mikið gaman :)

Nafnlaus sagði...

Nei nei, það er ekkert leiðinlegt að ég hafi ekki þorað upp í Paradísarhelli - ég væri þar enn! Og þar sem það er nú farið að kólna aðeins og dimma, þá þætti mér ekkert spennandi að kúldrast þar. ;-)