Ég er búin að ætla að fara í búð í einhverjar tvær vikur, aldrei haft tíma - eða gefið mér tíma. Svo núna í dag, loksins, skrapp ég í búð. Stóð svo eins og sauður inni í versluninni - hafði ekki minnstu hugmynd um hvað það nú var sem mig var búið að bráðvanta í hálfan mánuð.
Rölti um í nokkurn tíma. Endaði á því að kaupa morgunkorn og jólakort. Veit ekki enn hvað það var sem ég ætlaði að kaupa.
Stundum velti ég því fyrir mér hvort þessar heilasellur mínar séu í verkfalli.
mánudagur, nóvember 24, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli