sunnudagur, febrúar 22, 2009

Úlfapúsl

Jæja, hér gefur að líta úflapúslið sem tók mig aðeins einn og hálfan mánuð að púsla. Og sem gerði mig næstum því sköllótta. Það getur verið mjög pirrandi þegar púslurnar taka upp á þeim ósið að fara í feluleik - án þess að láta mig vita af því fyrirfram.
















Annars er mest lítið í fréttum. Aldrei þessu vant. Vinna, japanska, rækt, badminton. Svo sef ég þess á milli og horfi á sjónvarpið. Mjög innihaldsríkt líf sem ég lifi. Ábyggilega leitun að öðru eins.

Engin ummæli: