miðvikudagur, maí 20, 2009

Farin . . .

. . . til útlanda.

Kem samt bráðlega aftur.

Fyrsta stopp verður Berlín í fjörugum hópi samstarfsfólks. Þegar það snýr heim á leið, þá held ég á næsta stopp, sem er Leipzig í Þýskalandi líka. Það verður voða stutt stopp, sirka einn og hálfur dagur. Hitti þar tvær stelpur sem ég kynntist í Leeds. Það verður fróðlegt.
Þriðja stopp verður á Mið-Englandi, þorpið/bærinn Studley nánar tiltekið. Fjölskyldan í Redditch tók upp á því að flytja. Verð að kíkja á nýju slóðirnar. ;-)

Búin að pakka. Svona nokkurn veginn. Bakpokinn er að þorna á ofninum. Komst að því að hann var enn fullur af Martinique-sandi frá því fyrir akkúrat ári síðan.

En, ég harðneita að stíga á ígulker í þessu ferðalagi. Kemur ekki til greina. Alls ekki. Punktur.

Góðar stundir.

Engin ummæli: