þriðjudagur, janúar 30, 2007

Spretthlaup

Það lítur út fyrir að þriðjudagar verði frekar strembnir næstu vikurnar. Ástæðan er sú að á þriðjudögum eru tveir fyrirlestrar og tveir umræðutímar, já heilar fjórar klukkustundir. Það er allt í lagi. Það sem er í minna lagi er að þessir fjórir tímar eru hver á eftir öðrum, frá níu til eitt. Ekki ein mínúta í frímínútur á milli. Sem væri allt í lagi - ef tímarnir væru ekki dreifðir um háskólasvæðið.

- Fyrsti fyrirlestur klukkan níu, á þriðju hæð í fyrirlestrahúsi sem kallast Roger Stevens. Klukkan tíu lýkur fyrirlestrinum, nema kennaranum liggi mikið á hjarta, þá gæti fyrirlestrinum lokið nokkru síðar.
- Klukkan tíu hefst umræðutími í Workshop Theatre sem er fyrrum kirkja, hægt að komast þangað á þremur mínútum - ef maður hleypur.
- Klukkan ellefu hefst næsti fyrirlestur. Hann er líka í Roger Stevens fyrirlestrahúsinu. Á efstu hæð. Fimm mínútur á harða spretti, svo allir stigarnir (forðast lyftur, auk þess sem lyfturnar í þessu húsi eru hræðilegar). Stigarnir eru kapítuli útaf fyrir sig.
- Næsti umræðutími hefst klukkan tólf. Þá þarf að komast út úr Roger Stevens húsinu. Það er hægara sagt en gert. Þegar, ég veit ekki hve mörg þúsund nemendur, reyna að troðast út á sama tíma, og jafn margir nemendur ætla að komast inn.

Dagurinn hljóp allavega frá mér. Efast um að ég muni nokkurn tímann ná að lesa eitthvað vitrænt út úr glósum dagsins. En, þessi hlaup eiga víst að vera góð fyrir heilsuna. Einhver laug því að minnsta kosti einhvern tímann að mér að það væri óskaplega hollt að hreyfa sig.

Ekki tók nein sérstök afslöppun við þegar heim var komið. Gerði þau mistök að horfa á handboltaleik dagsins. Blóðið komst svo sannarlega á hreyfingu. Barði svo fast í borðið að ég skarta nú stórum og vígalegum marbletti á hægra handarbaki.

Engin ummæli: