Átta manns létu lífið á Enlandi í dag vegna veðursins. Þrjú vegna þess að tré féllu á þau eða bílana þeirra. Tvennt lést (á tveimur mismunandi stöðum) vegna þess að veggir féllu á þau.
Bílar fuku, flugi aflýst, hraðbrautir lokaðar með tilheyrandi umferðaröngþveiti, skip sökk í Ermarssundi, tuttugu og sex manns bjargað, þök fuku, hlutar húsa hrundu, tré féllu eins og hráviði á allt sem fyrir var, hundrað þúsund manns rafmagnslaus hér, tugir þúsundir þar.
En, ég hef það gott. Það var víst rafmagnsleysi í Jórvíkurskíri, samt ekki hjá mér. Vindurinn gnauðaði allrækilega og það ískraði duglega í tveimur bygginarkrönum hinu megin við götuna. Þeir fuku samt ekki.
Við Embarkment í London

Tré féllu t.d. á lestarteina við Sutton Coldfield
(Myndir fengnar af vef Breska ríkisútvarpsins)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli