fimmtudagur, mars 08, 2007

Fjúkk

Tveimur ritgerðum, hvor um sig í tvíriti, ásamt útfylltum og undirrituðum eyðublöðum, var skilað í dag. Þurfti reyndar fyrst að berjast fyrir tölvu, en það gekk.

Reyndar vaknaði ég einfaldlega ekki í morgun. Er búin að vera gersamlega meðvitundarlaus í allan dag, með bómul í stað heila. Hef ekki hugmynd um hvernig ég rambaði í réttan tíma í morgun.

Á morgun þarf ég svo að fara í viðtal við umsjónarkennarann í nútímabókmennaumræðutímunum. Ég fékk tölvupóst þar sem mér var tilkynnt að ég stæði mig nú ekki nægilega vel. Það gæti kannski verið af því að ég segi nú sem minnst um þessar blessuðu bækur. Hef nefnilega nákvæmlega ekkert um þær að segja, næ afskaplega litlu sambandi við þær. Og hef þar af leiðandi enga óstjórnlega löngun til að láta ljós mitt skína í þessum tímum.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með skilin! Endilega skelltu svo inn mynd af þér með nýju gleraugun svo við fáum að sjá gripinn:)

Kveðja Harpa

Nafnlaus sagði...

Já til hamingju með skilin;) Sammála Hörpu um að þú eigir að skella inn mynd af þér með nýju gleraugun! Harpa þar sem ég náði ekki að hitta þig áður en þú fórst eða ferð!!! þá bara góða ferð og hafðu það sem allra best úti, nú verður þú að vera eins dugleg og Linda að blogga (endilega láttu vita ef þú ert með einhverja síðu;)
Kveðja Saga og Margrét Helga

Dalbjört sagði...

Takk fyrir það!

Ég fæ gleraugun eftir helgi, mánudag eða þriðjudag, sennilega. Og ég veit ekki hvort ég hef kjart til að setja mynd af mér fyrir almannasjónir. Nógu ólöguleg er frummyndin, en ljósmyndir gera henni samt engan vegin nógu góð skil ;-) Er skárri í eigin persónu. En, ég skal sjá til.