Þetta var skemmtilegt leikrit, meira að segja hægt að hlæja stöku sinnum. Vel leikið að mér fannst. West Yorkshire Playhouse er líka alveg ágætis leikhús.Bara eitt sem ég var að velta fyrir mér á meðan á sýingunni stóð. Hvernig getur skoskur þjánn átt indverk/pakistansk- ættaðan son? Einn leikarinn var nefnilega greinilega ættaður af þeim slóðum. Hann lék meira að segja ekki einn heldur tvo syni, sem báðir voru drepnir. Svo lék hann líka eina norn. Hún var ekki drepin.

Svo var eitt sem pirraði mig. Mér finnst að það ætti að segja hæðatakmarkanir á leiksýningar og kvikmyndasýningar. Undantekningalaust lendi ég í því að sitja fyrir aftan tveggja metra slána. Þarf þar af leiðandi ef ætlunin er að sjá eitthvað að hálf liggja í kjöltunni þeim sem eru svo óheppnir að sitja við hliðina á mér. Reyndar svaf konan sem sat hægra megin við mig vært fyrir hlé. Hvað sem öllum öskrunum, hrópunum, köllunum, morðunum, þrumunum og eldingunum leið. Það er nú afrek útaf fyrir sig.

6 ummæli:
Heyrðu, hún hlýtur bara að hafa verið á einhverju, þessi blessaða kona sem svaf svona vært á morðsýningunni. Kv, Svanur Már.
Thad gaeti verid skyringin.
Ah, Makbeð. Og leidíið líka.
Eða eins og Pratchett orðaði það:
„Is this a handkerchief I see before me?“
Mæli sko hiklaust með Wyrd Sisters eftir Terry Pratchett, alveg hreint kostuleg „útgáfa“ af skoska leikritinu - með smá dash af Hamlet og fleiru.
Takk fyrir þá ábendingu. Skelli bókinni á leslista sumarsins í F12.
sofa í leikhúsi?! fari maður þá bara frekar heim! bráðum ferð þú líka heim linda litla, og ég...
Jamm, við erum á leiðinni heim í góða veðrið. :-)
Skrifa ummæli