sunnudagur, október 29, 2006

Keele

Saltaði ritgerðirnar mínar þrjár og skrapp í helgarfrí og afmæli til Háskólans í Keele í Staffordshire. Kristín og Helga Keele-nemendur voru svo almennilegar að bjóða mér og hýsa. Þakka fyrir mig. Skemmtileg helgi, góður félagsskapur og fallegur staður.

Þó að Leeds sé fín borg og háskólinn sé góður, þá var nú samt kominn tími til að kíkja aðeins út fyrir miðborgina. Tók lest frá Leeds til Manchester yfir / undir / í gegnum Pennína-"fjöll", skipti þar um lest og fór til Stoke-on-Trent. Þar fékk ég lúxus-þjónustu því Kristín tók á móti mér á lestarstöðinni. Fékk að fylgjast með kóræfingu (nei, ég hóf ekki upp raust mína, mér hefði verið vísað úr landi) og naut tímans á þessu fallega háskólasvæði.

Á laugardeginum var dagurinn ekki tekinn snemma. Snæddur morgun-hádegisverður á Lindsey Café / Bar og endað með pool-leik. Sem var skemmtilegur. Ég meira að segja náði að setja eina kúlu niður - í fyrsta sinn á ævinni. Mikill áfangi. Um kvöldið var svo haldið í afmæliskvölverð í Newcastle-under-Lime. Góður matur, en framreiðslan tók sinn tíma.

Í dag, sunnudag, var dagurinn tekinn snemma, klukkunni breytt (græddi heilan klukkutíma), vinir kvaddir að sinni, og haldið heim til Leeds. Komst að því að ritgerðirnar skrifuðu sig ekki sjálfar í fjarveru minni. Vískar. Neyðist því víst til að hefja lærdóm. Vandinn er sá að það er úr svo mörgu að velja, það er að segja, ég þarf að velja hvaða námsgrein ég á að byrja að læra fyrir. Og ég sem "þjáist" af valkvíða.

PS. nokkrar myndir frá Keele og ferðalaginu komnar á myndasíðuna.

Engin ummæli: