miðvikudagur, október 11, 2006

Léttir


Það er alveg ljóst að það getur ekki verið sólskin alla daga ársins. En flestir dagar eru bærilegir, sama hvernig viðrar. Óneitanlega verður, í mínum augum, bjartara yfir að líta um leið og allir fyrirlestrar eru að baki.

Ákvað í gær að í dag skyldi farið í Morrisons (álíka og Bónus). Og í dag skyldi ég fara niður í bæ og kaupa í matinn, þó svo að ég þyrfti að synda. Ég þurfti nú ekki að synda. En, ég hefði alveg getað notað regnhlífina sem bát, skólatöskuna sem segl og skóna sem árar. Nei, kannski ekki. En, regnhlífar eru þarfaþing. Þegar maður er ekki staddur í Sahara eða á Íslandi.

Í matinn var brauð með pylsum, og svo sterku ensku sinnepi að ég þurfti að fara úr sokkunum og drekka sirka líter af vatni.

Það er yndislegt, að vera í námskeiði sem heitir leynilögreglusagan (The Detective Story). Frábært að hafa góða afsökun til að lesa eitthvað annað en skólabækur. Verst að þurfa að mæta í umræðutíma og kryfja mismikil snilldarverk leynilögreglusagnahöfunda til mergjar. Og enn verra að þurfa, í náinni framtíð, að skrifa tvær 2.250 orða ritgerðir um tengt efni.

En, það má bíða betri tíma. Hins vegar getur Sherlock Homes ekki beðið betri tíma. Hann þarf að lesa fyrir umræðutíma fimmtudagsins.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það hefur einmitt líka rignt ansi mikið hér á landi undanfarið. Ég er alltaf að álpast til að hjóla. Oftast er gott veður þegar ég fer af stað um morguninn en svo virðist oftast fara svo ég hjóla heim í rigningu og roki. Merkilegur fjandi... Bókmenntaklúbburinn hóf göngu sína í gær og held ég að þetta hafi bara farið ljómandi vel. Hjalti kom til okkar í gegnum tölvuna og heyrðum við því rödd hans svífa yfir vötnum þó myndina vantaði. Ótrúlegt hvað hljóðið var gott miðað við að hann var staddur á Ítalíu.