föstudagur, október 06, 2006

Strætóar

Ég kann ekki að nota strætó. Ég horfi á hundrað og tuttugu vagna aka hjá meðan ég burðast með matarinnkaup vikunnar í plastpokum í sitt hvorri hendi og lærdóm dagsins í skólatösku á bakinu. Dettur mér í hug að stoppa á einhverri stoppistöðinni? Nei, aldrei. Að minnsta kosti ekki enn sem komið er.

Dettur mér í hug, á morgnana í hellirigningu að nýta mér ókeypis strætóana sem gætu stytt gönguna í skólann um helming? Nei, horfi á 30 manns bíða eftir næsta strætó, og arka áfram - í sólskini og rigningu.

Á ekki annars að vera voða hollt að hreyfa sig? Ég hef heyrt því fleygt. Kaupa ekki margir einhvers konar kort í svitalyktar-bakteríu-líkamsræktarstöðvar til þess eins að geta lyft lóðum og hlaupið á hlaupabretti í samneyti við bláókunnugt fólk með í-pot í eyrunum? Langbest að sleppa þess háttar misskilningi frá byrjun. Þá er nú betra að lyfta þungum innkaupapokum og sikksakka, með adrenalínið á fullu, milli tveggjahæða strætisvagna sem keyra þar að auki á vitlausum vegarhelmingi. Algerir rugludallar.

Þar að auki finnst mér að Geoffrey Chauser nokkur hafi verið óþarflega margorður. Og óþarflega iðinn við kolann. Og samantakendur The Riverside Chauser óþarflega nákvæmir. 1327 blaðsíður. Sem betur fer þarf ég nú ekki að lesa alveg alla bókina, en samt. Hefði mátt vera styttri, og aðeins minni doðrantur.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er með ólíkindum hvað þetta á við um margar bækur. Og oft þær sem eru voða frægar og eiga að vera voða djúpar en eru svo bara málalengingar og orðskrúð.

Dalbjört sagði...

Nákvæmlega!

Skotta sagði...

Svei mér þá, ég er einmitt að skrifa færslu um hvað ég sé orðin góð að taka strætó...

Nafnlaus sagði...

Frabaert hjá þér snúllan mín. Þú þarft að prenta þetta út eða þau. og safna saman í bók. Það verður svo gaman fyrir ykkur að lesa þetta seinn og svo kannske skrifar þú bók um allt heila klabbið. Bæði fyrir og eftir skóla erlendis of. fl. því þú ert efni í góðan rithöfund. og hana nú.

Nafnlaus sagði...

Hahaha, ég tek ekki heldur strætó.

Heyrðu, þú mátt að sjálfsögðu setja mig á linkalistann, ég ætla að skella þér inn hjá mér líka.

Vona að þú hafir það gott!!!

Kveðja,

Sif