Gott og vel, það viðurkennist hér með að ég er Íslendingur - og horfi á Evróvision. Meira að segja þó ég eigi í raun og sann að sitja sveitt yfir námsbókunum. Meira að segja þó ég sé ein í litlu herbergi á heimavist í Leeds. Dapurlegt? Kannski.
Skilst að Sigmar hafi farið á kostum og látið allt flakka í lýsingu sinni á keppninni. Ég horfði á keppnina á BBC3 þar sem að gæði útsendingarinnar á netinu heima eru ekkert allt of mikil. Breska parið sem sá um að blaðra yfir lögin var heldur tilþrifalítið svo ekki sé meira sagt. Stelpan var í því að telja leðurbúningana, sýna myndir af sér í gufubaði með spænsku og "grísku" flytjendunum og maðurinn var helst í því að spjalla við ensku flytjendurna.
Og svo komumst við ekki áfram. Ekkert Norðurlandanna komst áfram. Ekkert Vestur-Evrópuríki komst áfram. Samsæri? Níu lönd frá Austur-Evrópu munu stíga aftur á svið á laugardaginn: Hvíta Rússland, Makedónía, Slóvenía, Ungverjaland, Georgía, Litháen, Serbía, Búlgaría og Moldavía. Tíunda landið áfram í úrslitin er ekki einu sinni í Evrópu nema að agnarlitlum hluta og alls ekki í anda, Tyrkland.
Ég verð með míní-júróvisjón-samkomu (partý er nú varla rétta orðið) á laugardaginn. Tvær þýskar stelpur og tvær íslenskar, að mér meðtalinni.
Og nú er best að fara að lesa ljóð eftir Philip Larkin, Seamus Heaney og Eavan Boland.
fimmtudagur, maí 10, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli