mánudagur, maí 21, 2007

Redditch







Er búin að eiga frábæra daga í Redditch. Þakka kærlega fyrir mig.

Við skoðuðum mjög heillegan og vel varðveittan kastala á laugardaginn, Warwick kastala. Mikið labbað, hlustað á ómfagran páfuglasöng, horft á bogmenn Englendinga stráfella fulltrúa Frakka í Rósastríðinu og svo var farið í draugaturninn. Einn draugurinn sem stökk upp að mér með roknaöskri virtist nú vera af holdi og blóði, því öskrið var svo mikið og alveg upp við andlitið á mér að munnvatnið frussaðist yfir mig. Draugar hvað!

Á sunnudaginn fyrir hádegið fórum við á farangursgeymslusölu eða skottsölu (á ensku Car Boot Sale) sem er haldin vikulega ef veður leyfir á stóru túni. Bíll við bíl. Fullt af alls kyns bráðnauðsynlegum vörum til sölu. Taldi til dæmis þrjú fótanuddtæki ef vera kynni að einhver hefði ekki fengið slíkt þarfaþing í jólagjöf forðum daga. Þar að auki má nefna sem dæmi um vöruframboðið allt frá þurrkuðum svínseyrum fyrir hunda að eldavélum, og allt þar á milli. Hef það svo eftir áreiðanlegum heimildum að sést hafi til vongóðs skottsala með notaðan þvottabursta til sölu. Þetta var mjög áhugaverð samkunda. Fólk af öllum stærðum og gerðum - og önnur hver manneskja með að minnsta kosti eitt hundspott í ól.

Ekki stoppa ég lengi við í Leeds að þessu sinni. Fer strax aftur á flakk á morgun. Eldsnemma í fyrramálið. Tek bíl á leigu ásamt þremur Þjóðverjum, lagt verður af stað (samkvæmt planinu) stundvíslega klukkan átta. Það var nefnilega örfáum pundum ódýrara en að taka lest samkvæmt útreikningum þeirra. Svo er búið að smyrja nesti (ekki á að eyða stórfé í að kaupa einhvers konar tilbúinn mat á leiðinni, sussu-nei). Ætlunin er að skoða Vatnahéruðin aðeins (Lake District) og gista eina nótt á farfuglaheimili sem heitir Elterwater og er víst elsta hlaðan á svæðinu (búið að breyta henni í vistarverur sem sæma farfuglum). Svo var mér sagt að taka gönguskóna með. Úff. Ég sem er búin að borða yfir mig undanfarna daga.

Þetta verður fróðleg för. Bestu kveðjur þar til næst.

PS. Myndir frá Warwick kastala komnar á myndasíðuna.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hallo

Skemmtu ter vel i ferdalaginu; Ekki vera ad eyda penigum i neinn otarfa; til daemis ad smyrja nesti; tu getur bara skotid ter ikorna til matar tegar tu ferd i gongutur og drukkid ur naestu spraenu sem tu serd hi hi:

Bestu kvedjur Harpa