þriðjudagur, maí 15, 2007

Prófið búið


Frjáls eins og fuglinn.
Vetri mínum í Háskólanum í Leeds er lokið. Prófið búið. Nú er gaman að lifa. Svo fann ég líka síðbúna afmælisgjöf í pósthorni skrifstofunnar. Gjöfin var síðbúin af því að gáfumennin á skrifstofunni settu tilkynninguna um umslagið í skúffuna hjá vitlausum turni. Takk Helga! Þetta eru einmitt bókmenntir við mitt hæfi um þessar mundir. Fyrst engar Syrpur eða Andrésblöð eru við hendina. Svo fer ég til Redditch á morgun og verð þar í góðu yfirlæti í nokkra daga. Lífið gæti ekki verið mikið betra.

Jú, reyndar. Það eru þrjú ljós á ganginum í íbúðinni. Miðjuljósið er búið að blikka stöðugt í nokkra daga. Rosalega pirrandi. Svo er líka einhver á hæðinni mikið fyrir að kveikja á reykelsi, hvílík stybba sem gerir þar að auki innrás í herbergið mitt. Hvergi friður. En, þetta eru nú bara minniháttar umkvörtunarefni. Fátt skyggir á gleði mína í dag. Ekki einu sinni rapptónlistin sem ómar frá herberginu hans Steve. Né árásir skordýranna. Neibb. Í dag er ég í góðu skapi. Svona til tilbreytingar. Svotil algerlega ósofin - að venju - en það skiptir bara engu máli. Ég er kát og glöð. Best að hafa færsluna ekki lengri að sinni, óttast að þið farið að halda að ég sé komin á einhver gleðiefni.

Svo er ekki. Kveð að sinni. Er farin í nokkurra daga frí. Góðar stundir.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með að vera búin í prófinu og með að vera búin í skólanum;) Rosalega hefur þetta nú verið fljótt að líða! Hafðu það gott. Sjáumst:)
Kveðja Saga

Nafnlaus sagði...

Til hamingju. Það verður gott að fá þig á bókasafnið. Hafðu það sem best þangað til, kveðja, Svanur

Nafnlaus sagði...

Til hamingju Linda min:)

Hlakka til ad sja ykkur oll i jùni. Haltu bara afram a gledilyfjunum, alltaf gaman ad vera a ljosraudu skyi inn a milli:)

Bless i bili
Harpa

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir. :-)

Er ekki enn búin að fatta að ég sé ekki aðeins búin í prófunum núna, ekki aðeins búin með skólann núna, heldur verði ekki meiri próf, ritgerðir eða skóli þar til eftir áramót. Bara kemst ekki inn í kerfið.

Þó það sé nú rosalega gaman hérna, þá verður líka gott að koma heim.

Hlakka til að hitta ykkur,
bestu kveðjur.