Ekkert varð af Coventry-leikhúsferðinni. Það er allt í lagi. Horfði á Gettu betur í staðinn. Þar var spurt um bókina Góðir Íslendingar eftir Huldar Breiðfjörð. Vissi um hvaða bók var spurt, en hvorki titill bókarinnar né nafn höfundar gerðu vart við sig. Hins vegar hefði verið minnsta málið fyrir mig að labba að henni í 910,4 á Bókasafninu.
Ákvað að vera duglegur nemandi. Og villtist um bókasöfnin í einn og hálfan klukkutíma í leit að heimildum fyrir aðra ritgerðina og bakgrunnsundirbúning fyrir einn umræðutímann á þriðjudaginn. Afraksturinn var fjórar bækur (eða tæknilega séð þrjár auk ljósrits úr þeirri fjórðu) og ljósrit af ljósriti.
Fyrsta bókin var á þrettándu hæð í Edward Boyle bókasafninu, bækur á þeirri hæð eru ekki til útláns, þannig að við tók leit að nothæfri ljósritunarvél. Einungis eitt þannig fyrirbæri virtist vera að finna á þeirri hæð. Og varla nothæft. Ískraði, skrölti og hikstaði samt sem áður í gegnum tuttugu blaðsíður.
Næsta bók var á níundu hæð sama bókasafns. Í flokki bóka sem eru bara lánaðar út í viku. Kannski er vert að geta þess að níunda hæðin er jarðhæðin í Edward Boyle. Englendingar eru svo sniðugir.
Fann svo ljósrit af áhugaverðri grein í eftirsóttu deildinni í Edward Boyle (hver ætli sé besta þýðingin á "high demand"?), þar er útlánstíminn heilir fjórir klukkutímar. Niðurstaðan varð því ljósrit af ljósritinu - og sú ljósritunarvél virtist gefa upp öndina þegar hún var búin að skyrpa út úr sér síðasta blaðinu.
Þriðja bókin var á fjórðu hæð í aðalbyggingu Brotherton bókasafnsins, gengið er inn í það bókasafn úr Parkinson byggingunni, nema maður labbi fyrst í gegnum Baine's Wing, þaðan yfir í Parkinson og svo Brotherton. Einfalt? Fjórða hæðin í Bortherton, er önnur hæðin. Þriðja hæðin þar er semsagt jarðhæðin. Einfaldara? Kíkti líka aðeins á eina bók sem var á 2. hæð, það er að segja á fyrstu hæðinni í kjallaranum, en hætti við að taka hana.
Fjórða bókin var líka á Brotherton safninu, bara í vesturálmunni (west wing), á þriðju hæð, jarðhæðinni.
Hefði getað fundið fleiri bækur í Bókasafni afríkufræðamiðstöðvar Háskólans í Leeds (Leeds University Centre for African Studies library). Það safn er víst að finna á 2. hæð í félagsvísindabyggingunni, og er bara opið á miðvikudags- og föstudagseftirmiðdögum.
Kannski seinna. Ef þörf krefur. Ekki í dag. Ekki eftir leitina miklu að þessum fjórum bókum og ljósriti.
Eins gott að vera með smá reynslu úr heimi bókasafna.
PS. Í þessari færslu er ekki eitt einasta "ég" að finna, fyrir utan þetta seinasta. Kannski væri best að finna einhvern milliveg. Sé til.
föstudagur, febrúar 23, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli