fimmtudagur, febrúar 22, 2007

Óvissa

Ekki veit ég enn hvort ég fer til Coventry að sjá einhverja leiksýningu - ekki frekar en ég veit um hvaða sýningu er að ræða eða eftir hvern. Það verður bara að koma í ljós. Annaðhvort ramba ég á einhverja rútu við Parkinson tröppurnar um þrjúleytið á morgun og enda einhvers staðar í Coventry, eða ekkert verður af ferðinni og ég fer á bókasöfnin að afla heimilda fyrir eins og eina ritgerð. Hvort ætli væri nú skemmtilegra?

Þar sem ég virðist ekki hafa neitt merkilegt fram að færa í dag (annað en flesta aðra daga), þá held ég að það væri öllum fyrir bestu að ég láti hér staðar numið, að sinni. Svona áður en fólk fer að hrynja niður í hrönnum. Ég hef enga óstjórnanlega löngun til að drepa ykkur úr leiðindum. Ég reyni allavega að hafa hemil á mér. Ég lofa.

Ellefu "ég" í stuttri færslu. Ég verð greinilega að fara að gera skurk í stílnum - og þar bættist það tólfta við. Þetta gengur ekki.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mæli með að þú farir í leikhús/óvissuferð. Miklu skemmtilegra og hollara fyrir líkama og sál:)

Dalbjört sagði...

Já svo sannarlega, verst að seinasti miðinn í ferðina seldist, þannig að ég mun sitja heima um helgina - og skemmta mér við að læra og skrifa ritgerð.