Einkunnirnar voru sendar í tölvupósti í dag. Ég féll ekki. Ég náði. Ég slefaði. Rétt svo. En náði samt.
Hef aldrei á ævinni fengið jafn lélegar einkunnir, en mér er sama, næstum því.
Einkunn lægri en 40 er fall. Kvarðinn nær upp í 90, en einkunnir upp á 80 og 90 sjást samt aldrei nokkurn tímann.
Endurreisnarbókmenntir (Renaissance Literature) : 43 (Low Third)
Miðalda-endurreisn (Medieval Renascence) : 47 (High Third)
Leynilögreglusagan (The Detective Story) : 57 (High 2:2)
Listi með öllum nemendanúmerum og einkunnum var sendur, þannig að ég gat séð allar einkunnirnar í þessum námskeiðum. Ég var aldrei með lægstu einkunnina, samt voru nú ekki margir sem féllu, ekki miðað við á Íslandi. Hæsta einkunnin sem ég sá af þessum ábyggilega milli fjögur og fimm hundruð einkunnum, var 78. Einkunnir frá 70 og upp í 78 voru ekki mikið fleiri en tíu. Þetta finnst mér frekar skrýtnar einkunnagjafir. En, mér er sama.
Nú er ég farin að hugsa um að fara ef til vill að minnsta kosti að kíkja á ritgerðarefnin fyrir ritgerðirnar tvær sem á að skila í byrjun mars. Svo fljótlega þarf víst að fara að huga að heimildum og samningu. Fljótlega.
Ira ætlar að reyna að draga mig í leikhúsferð til Coventry á föstudaginn. Man í augnablikinu ekki einu sinni hvað leikritið heitir. Coventry er sirka miðja vegu á milli London og Leeds. Þetta er ekki alveg komið á hreint, það var bara einn miði eftir í ferðina, og ég var ekkert allt of ákveðin, ætlaði að vera samviskusamur nemandi. Hvað er svosem einn föstudagur?
miðvikudagur, febrúar 21, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
Það er ekkert að því að slefa. Við slefum öll. Kveðja frá Strandgötu 1.
Til hamingju með einkunnirnar:)
Skrifa ummæli