mánudagur, febrúar 26, 2007

Sinnuleysi

Nú er það að nálgast tólf klukkutímana, sem ég er búin að stara út í loftið, í stað þess að byrja að vinna í annarri ritgerðinni.

Og það er partý í eldhúsinu.

Með tónlist. Og rauðvíni. Skvaldri, hlátrasköllum og þess háttar.

Sem ég nenni þessu!

Er ekki í nógu góðu skapi til að blogga skemmtilega núna. Reyni að standa mig betur fljótlega.
En, ég þreytist ekki á að klifa á því hve tíminn er ótrúlega fljótur að líða.

Best að koma mér að verki, eða ekki.

2 ummæli:

Skotta sagði...

Hertu upp hugann, stelpan mín. Sorry ég hef varla verið msn undanfarið en það hefur verið skorpulestur mikill undanfarna daga. Nú eru framundan ritgerðarskrif og aldrei að vita nema við þjáningasystur á nýjan leik. Reyndar fer ég til London í millitíðinni að passa fyrir frænku mína (en þú vissir það). Vil ítreka að ég samsinni því að enskudeildir háskólanna hér í UK gefa einkunnir á fáránlegan hátt - það er nákvæmlega sama system og einkunnadreifing hérna í Keele.. Til hvers að hafa skala ef hann er ekki notaður almennilega? En við þurfum reyndar bara að ná... Gott að vera skiptinemi :)

Nafnlaus sagði...

Já, ég þakka svo sannarlega fyrir að vera bara skiptinemi hérna, einkunnalega séð.